Ráðgjafi í netöryggisteymi Deloitte

Kópavogur, Kópavogsbær, is on site Until 10/5/2026 First posted August 6, 2026 Last posted August 6, 2026
Job description

Deloitte er leiðandi þjónustuveitandi á sviði endurskoðunar og reikningsskila, upplýsingatækniráðgjafar, fjármálaráðgjafar, áhætturáðgjafar, skatta– og lögfræðiráðgjafar og tengdrar þjónustu. Alþjóðlegt net aðildarfélaga okkar og tengdra félaga spannar meira en 150 lönd og landsvæði (sameiginlega vísað til sem „félög Deloitte"). Hjá Deloitte starfa um 460.000 sérfræðingar sem stefna saman að því að veita ávallt framúrskarandi þjónustu þar af eru 360 á Íslandi.

 

Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi með brennandi áhuga á netöryggi, þar á meðal regluverki, áhættustýringu og stjórnarháttum, til að styrkja vaxandi netöryggisteymi okkar. 

Við veitum heildstæða netöryggisráðgjöf með áherslu á reglufylgni, úttektir og eftirlit  á sviði netöryggis, áhættustýringu ásamt uppbyggingu öflugra stjórnarhátta og öryggisráðstafana. Við leitum að einstaklingi sem hugsar í lausnum, er tilbúinn að bretta upp ermar og taka virkan taka þátt í að greina ferla og verklag og efla netöryggi og netöryggisvarnir viðskiptavina. 

 

Helstu verkefni og ábyrgð  

Meðal verkefna sem netöryggisráðgjöf sinnir eru eftirfarandi:  

  • Úttektir, gloppugreiningar og mat á fylgni við lög, reglur, stjórnunarkerfi eða innra verklag s.s. DORA, NIS2 og ISO27001 

  • Alhliða ráðgjöf og stefnumótun á sviði netöryggis og rekstrarsamfellu m.a. til að þróa og bæta netöryggisverklag 

  • Mat á stjórnarháttum og stöðu netöryggisráðstafana  

  • Áhættumat, áhættustýring og greining netöryggisáhættu  

  • Stjórnendaþjálfun og fræðsla   

Sem hluti af netöryggisteymi Deloitte muntu aðstoða viðskiptavini við að innleiða, efla og fylgja netöryggiskröfum og styðja þá í gegnum áskoranir sem leiða af breyttum netógnum og rekstrarumhverfi ásamt því að vinna að bættum viðnámsþrótti og rekstrarsamfellu.   

Hjá Deloitte færð þú tækifæri til að vera hluti af öflugu netöryggissamfélagi á alþjóðavísu, vinna með leiðandi fyrirtækjum og stofnunum, kynnast fjölbreyttum atvinnugreinum og taka þátt í netöryggisverkefnum sem skipta sköpum fyrir rekstrarsamfellu og traust viðskiptavina.  

Menntunar- og hæfniskröfur  

  • Háskólamenntun eða sambærileg reynsla sem nýtist í starfi  

  • Þekking og reynsla af netöryggismálum, regluverki og/eða stjórnunarkerfum netöryggis 

  • Hæfni til að greina flókin verkefni af öryggi og aðlagast hratt nýjum áskorunum 

  • Mjög góð samskiptafærni og vilji til samvinnu   

  • Fagmennska, sjálfstæði og vönduð vinnubrögð   

  • Hæfni í að setja fram skýran, hnitmiðaðan og faglegan texta og miðla upplýsingum á skiljanlegan hátt  

  • Gott vald á íslensku og ensku, bæði töluðu og rituðu máli  

  • Metnaður til að veita framúrskarandi þjónustu og skapa góða upplifun fyrir viðskiptavini  

  • Áhugi á gervigreind, áhættustýringu og innri/ytri úttektum   

  • Viðeigandi vottanir (ISO27001; CISSP, CISA, CISM, Security+  eða sambærilegar vottanir) eru kostur 

Um teymið 

Netöryggisteymið samanstendur af reynslumiklum sérfræðingum með fjölbreyttan bakgrunn og reynslu. Við vinnum saman sem ein heild og eigum í góðu samstarfi við  aðra sérfræðinga Deloitte, bæði innanlands og erlendis.       

Starfsþróun þín 

Við trúum því að það sé ávallt rými til að læra. Það kann enginn allt frá fyrsta degi. Þú færð viðeigandi þjálfun og munt vaxa með teymunum okkar. Þú lærir mikið á þeim fjölbreyttu verkefnum sem þú tekur að þér hjá viðskiptavinum í ólíkum geirum, þú fylgist vel með á þínu fagsviði og við að sama skapi viljum styðja við þinn vöxt með símenntunartækifærum.  

 

Að auki bjóðum við upp á: 

  • Frábært mötuneyti með niðurgreiddum morgunmat og hádegismat.
  • Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf
  • Góðan aðbúnað í höfuðstöðvum okkar á Dalvegi
  • Styrki til nýbakaðra foreldra
  • Sjálfboðastarf til áhrifa – launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum
  • Fjölbreytt áhugamál samstarfsfélaga þvert á félagið t.d. hlaupahópur, fótbolti í hádeginu og leikjaherbergi  

Við hlökkum til að fá umsóknina þína.

Nánari upplýsingar um starfið veita Alma Tryggvadóttir er leiðir netöryggisráðgjöf Deloitte ([email protected]) og Hafdís Björk Stefánsdóttir í mannauð. ([email protected]). 

Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst. Tekið er á móti umsóknum í gegnum heimasíðu Deloitte, www.deloitte.is, til og með 17. ágúst 2026.    

 

Vilt þú hafa áhrif? Hjá Deloitte skiptir þitt framlag máli því saman, sem ein heild, vinnum við að því að hafa áhrif á viðskiptavini, samstarfsfélaga og samfélag. Þú færð tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum þvert á svið, starfsstöðvar og lönd, auka hæfni þína og færni og hafa góðan stuðning til vaxtar og þróunar í starfi. 

About this role

Summary

Provide cybersecurity consulting, risk management, and compliance advice to clients.

Job title

Ráðgjafi í netöryggisteymi Deloitte

Experience level

none

Industry

professional services

Location requirements

Kópavogur, Iceland; remote work allowed

Salary

Not specified

Management role

No

Skills & keywords

Required skills

netöryggiregluverkiISO27001vottanir

Preferred skills

gervigreindCISSPCISACISMSecurity+

Specializations

netöryggiregluverkiáhættuþjálfunstjórnarháttumtæknilegri ráðgjöf
Locations

Structured locations inferred from the posting.

Kópavogur, Iceland

Hybrid City
Related searches