Deloitte á Akureyri leitar að viðskiptafræðingi

Akureyri, Akureyrarbær, is on site Until 10/5/2026 0+ years exp First posted August 6, 2026 Last posted August 6, 2026
Job description

Deloitte er leiðandi þjónustuveitandi á sviði endurskoðunar og reikningsskila, upplýsingatækniráðgjafar, fjármálaráðgjafar, áhætturáðgjafar, skatta– og lögfræðiráðgjafar og tengdrar þjónustu. Alþjóðlegt net aðildarfélaga okkar og tengdra félaga spannar meira en 150 lönd og landsvæði (sameiginlega vísað til sem „félög Deloitte"). Hjá Deloitte starfa um 460.000 sérfræðingar sem stefna saman að því að veita ávallt framúrskarandi þjónustu þar af eru 360 á Íslandi.

 

Deloitte á Akureyri leitar að öflugum einstaklingi sem  langar að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni. Við leitum að einstaklingi sem hugsar í lausnum, getur unnið sjálfstætt, er drífandi og vill hafa áhrif. Viðkomandi mun starfa í samheldnu teymi undir handleiðslu löggiltra endurskoðenda og öðlast þannig dýrmæta reynslu meðal annars á sviði endurskoðunar og reikningsskila.  

Helstu verkefni:  

Vinna við endurskoðun, gerð ársreikninga, gerð skattframtala og almenna fjármálaráðgjöf.  

  • Þú ert að ljúka eða hefur lokið B.Sc. menntun sem tengist viðskiptafræði, hagfræði eða fjármálum   

  • Þú hefur metnað og nýtur þess að læra  

  • Þú hefur gaman af því að takast á við ný og krefjandi verkefni  

  • Þú býrð yfir greiningarhæfni og góðri þekkingu á Excel  

  • M.Acc gráða er kostur   

Um teymið 

Teymið samanstendur af reynslumiklum sérfræðingum með fjölbreyttan bakgrunn og reynslu. Við vinnum saman sem ein heild og eigum í góðu samstarfi við  aðra sérfræðinga Deloitte.

Starfsþróun þín 

Við trúum því að það er ávallt rými til að læra. Það kann enginn allt frá fyrsta degi. Þú færð viðeigandi þjálfun og munt vaxa með teymunum okkar. Þú lærir mikið á þeim fjölbreyttu verkefnum sem þú tekur að þér hjá viðskiptavinum í ólíkum geirum, þú fylgist vel með á þínu fagsviði og við að sama skapi viljum styðja við þinn vöxt með símenntunartækifærum. 

Að auki bjóðum við upp á:  

  • Regluleg frammistöðu samtöl  
  • Samstarfsfélaga ‘buddy’ sem kemur þér inn í starfið  
  • Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf 
  • Styrki til nýbakaðra foreldra 
  • Sjálfboðastarf til áhrifa – launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum 
  • Fjölbreytt áhugamál samstarfsfélaga þvert á félagið

Við hlökkum til að fá umsóknina þína.

Nánari upplýsingar um starfið veita Aðalsteinn Sigurðsson eigandi  ([email protected]) og Ásta Þyri Emilsdóttir ([email protected]) í mannauð.

Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst. Tekið er á móti umsóknum í gegnum heimasíðu Deloitte, www.deloitte.is, til og með 16. ágúst 2026. 

 

Vilt þú hafa áhrif? Hjá Deloitte skiptir þitt framlag máli því saman, sem ein heild, vinnum við að því að hafa áhrif á viðskiptavini, samstarfsfélaga og samfélag. Þú færð tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum þvert á svið, starfsstöðvar og lönd, auka hæfni þína og færni og hafa góðan stuðning til vaxtar og þróunar í starfi. 

About this role

Summary

Assist in audit, financial statements, tax returns, and financial advice under supervision.

Job title

viðskiptafræðingur

Experience level

entry level

Minimum experience

0+ years exp

Industry

professional services

Location requirements

Akureyri, Iceland, remote work not specified

Salary

Not specified

Management role

No

Skills & keywords

Required skills

Excelanalytical skills

Preferred skills

M.Acc

Specializations

auditfinancial statementstax returnsfinancial advisory
Locations

Structured locations inferred from the posting.

Akureyri, Iceland

On-site City
Related searches